Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo

Fræðsla

Hvers vegna að þróa stafrænan lestrarleik til að efla lestur?

Birgir

Birgir Hrafn

Fræðsla

Mars 31, 2026

Við hjá LESA teljum að samfella í lestri sé lykill að árangri og þess vegna nýtum við nýjustu tækni til að mæta hverju barni á eigin forsendum. Stöðug þjálfun og gagnvirkni í gegnum Sögusmiðjuna skila læsum börnum sem njóta þess að kafa í ný ævintýri. Lestur er ekki bara námsfærni heldur mikilvæg lífsleikni sem opnar dyr að sköpun og virkri þátttöku í samfélaginu fyrir alla framtíðina

Lestur er grunnurinn að þekkingu, sköpun og virkri samfélagslegri þátttöku. Með það fyrir augum að styðja við lestrarfærni barna og þá vitneskju að lestur og lesskilningur hafði versnað sem um munaði, undirrituðu mennta- og menningarmálaráðuneyti og sveitarfélög landsins svokallaðan Þjóðarsáttmála um læsi á haustdögum 2015. Samkvæmt samningnum var markmiðið að a.m.k. 90% allra nemenda í 10. bekk geta lesið sér til gagns árið 2018, en við undirritun samnings náðu einungis 79% nemenda lágmarksviðmiðum. Nýjustu tölur úr PISA-könnun OECD sýna að 40% íslenskra nemenda ná ekki grunnviðmiðum í lesskilningi, samanborið við 26% á Norðurlöndunum sem er óviðunandi staða. Á sama tíma benda rannsóknir á erlendri grundu til þess að áhugi barna á yndislestri fari snarminnkandi, sem undirstrikar mikilvægi þess að finna nýjar leiðir til að vekja lestraráhuga og bæta færni í lestri (Peerbacos, 2024; Stjórnarráð Íslands, 2015, 2023).

Hvað er LESA og hvert er markmiðið?


Þar komum við að LESA verkefninu. LESA er lestrarleikur og menntatæknilausn (EdTech) hönnuð til að snúa við neikvæðri þróun í læsi og efla áhuga og færni barna í lestri. Markmið verkefnisins er að þróa og skala stafræna lausn í formi smáforrits þar sem börn æfa lestur á eigin forsendum. Í stað þess að reyna að laga barnið að kerfinu, miðar LESA að því að aðlaga lestrarumhverfið að barninu með hvatningu, gagnvirkni og virkri þátttöku.

Markmið LESA er einfalt en stórt: Að auka yndislestur barna og ná þeim markmiðum sem sett voru 2015 – styðja þannig við menntun barna og efla íslenska tungu til framtíðar.

Spunagreind nýtt til góðra verka


Nýnæmi LESA og helsta samkeppnisforskot lausnarinnar felst í LESA Story Engine (Sögusmiðjan). Sögusmiðjan er sérsmíðuð lausn sem nýtir spunagreind (ai) til að framleiða mikið magn af vönduðu lestrarefni sem fylgir ströngum faglegum viðmiðum í samvinnu við Miðstöð Menntunar og Skólaþjónustu og faglega ritstjórn.

Nýnæmi LESA felst í:

  • Stigskipt efni: Sögusmiðjan framleiðir 365 sögur fyrsta árið, hverja í þremur ólíkum erfiðleikastigum. Sögusmiðjan er einstök á heimsvísu.

  • Fagleg viðmið: Efnið fylgir viðmiðum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) um orðaforða, innlögn hljóða (stafa), hljóðnotkun og lengd texta.

  • Tölfræðimælingar: Við mælum gögn og árangur barns (framvindu) og birtum upplýsingar sem hluta af leiknum í formi “stigagjafar”– sem aftur miðar að því að barnið upplifi árangur sem er hvatning til þess að halda áfram að LESA. Hægt verður að stilla erfiðleikastig sagna.

  • Leikjavæðing (Gamification): Heildstæður persónuheimur og umbunarkerfi („Leikvöllurinn“) sem breytir lestraræfingum í spennandi ævintýri.


Viðskiptaleg verðmæti felast í skalanleika lausnarinnar. Sögusmiðjan gerir LESA kleift að framleiða mikið magn af gæðaefni með hagkvæmari hætti en hefðbundin útgáfa. Grunnkerfið er hannað þannig að auðvelt er að aðlaga það að öðrum tungumálum, sem opnar á verulega vaxtarmöguleika á alþjóðlegum mörkuðum.


LESA kemur út haustið 2026

LESA kemur út
haustið 2026

Leikurinn er væntanlegur haustið 2026. Skráðu þig á biðlista

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

LESA Logo

Leikurinn er væntanlegur haustið 2026. Skráðu þig á biðlista

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði
LESA Logo

Leikurinn er væntanlegur haustið 2026. Skráðu þig á biðlista

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

LESA Logo