LESA eða Undralingur
Báðar lausnirnar eiga sama markmið, að íslensk börn lesi meira og hafi gaman af. Undralingur býður fallegar, handunnar gagnvirkar bækur. LESA er lestrarleikur með sístækkandi sögusafni, nýrri sögu á hverjum degi, sjálfvirkum mælingum fyrir foreldra og hvatakerfi sem heldur börnum við lesturinn.
Stærsti munurinn er safnið
Stærsti munurinn er safnið
Báðir vinna hverja sögu fyrir sig. Munurinn liggur í kerfinu á bak við. Hjá Undralingi er sagan skrifuð og gagnvirknin síðan forrituð sérstaklega inn í hverja bók. Útkoman er falleg, en útgáfan tekur tíma. Á vef Undralings eru rúmlega 20 titlar í boði.
Hjá LESA er hver saga líka skrifuð frá grunni. Sögusmiðjan er kerfið í kringum skrifin. Hún stækkar hverja sögu í þrjú erfiðleikastig, heldur utan um myndir, spurningar og þrautir og passar að hver saga fylgi forskrift sem unnin var í samvinnu við MMS og tekur tillit til allra stafa, hljóða og algengustu orða. Þannig skrifum við hraðar án þess að slaka á kröfum. Safnið telur nú 365 sögur og efnið er yfirfarið af faglegri ritstjórn.
Fyrir barn sem les á hverjum degi skiptir þetta öllu. Safn sem klárast ekki heldur lestrinum gangandi.




Ný saga á hverjum degi, tengd deginum sjálfum
Er bolludagur? Þá er saga um bolludag. Sumardagurinn fyrsti, 17. júní, jólin? Hver dagur á sína sögu í LESA, tengda íslenskri menningu. Lesturinn tengist lífinu utan skjásins og gefur fjölskyldunni og kennaranum eitthvað að tala um.
Segja má að LESA sé sögusafn sem eignast nýja sögu á hverjum morgni.

Samanburðartafla















Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita
1.
Getur LESA komið í stað heimalestrarskráningar skólans?
Lestur í LESA mælist sjálfkrafa, þannig að yfirsýnin sem skráningarkerfi veita verður til af sjálfu sér. Árið 2027 bætist við kennarayfirlit svo skólar fái sömu sýn og foreldrar.
2.
Fyrir hvaða aldur er LESA?
Fyrsta útgáfa LESA er fyrir 5–7 ára börn, þar sem grunnurinn að lestri er lagður.
3.
Hvaðan koma sögurnar í LESA?
Úr Sögusmiðjunni okkar: sögukerfi sem heldur utan um sögur, myndir, spurningar og þrautir. Hver saga er byggð á faglegum grunni sem tekur tillit til allra stafa, hljóða og algengustu orða, og efnið er yfirfarið af fólki.
4.
Þarf ég að skrá lesturinn?
Nei. Það er einmitt málið.

















