Spurt og svarað um LESA
Hér finnurðu svör við algengustu spurningunum — allt frá fyrstu skrefum og áskrift til persónuverndar og skólasamstarfs. Finnurðu ekki svarið? Hafðu samband
1.
Hvað er LESA?
LESA er íslenskur lestrarleikur fyrir börn sem sameinar leik og lestur til að efla lesfimi, lesskilning og lestraránægju. Barnið les nýja sögu á hverjum degi, svarar léttum spurningum um efnið og safnar lestrarmínútum sem það getur nýtt á Leikvellinum, hvata- og verðlaunakerfi smáforritsins.
2.
Fyrir hverja er LESA?
LESA er hannað fyrir börn í 1.–4. bekk grunnskóla en hentar einnig leikskólabörnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestri. Í allra fyrstu útgáfu er áherslan á 1. bekk. Forsjáraðilar fá aðgang að yfirliti þar sem hægt er að fylgjast með framförum hvers barns.
3.
Á hvaða tungumáli er LESA?
Allt efni í LESA er á íslensku: sögur, spurningar, leiðbeiningar og viðmót. Efnið er skrifað og yfirfarið af íslenskum ritstjórum. Útgáfur á fleiri tungumálum eru fyrirhugaðar þegar appið verður gefið út utan Íslands.
4.
Hverjir standa á bak við LESA?
LESA er þróað af Revera ehf., íslensku fyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík. Stofnandi og framkvæmdastjóri er Birgir Hrafn Birgisson, meðstofnendur eru tæknistýran Þórdís Jóna Ingigerðardóttir og hönnunarstjórinn Bjarki Steinn Birgisson. Verkefnið er unnið í samstarfi við 14islands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), Miðeind og öryggissérfræðinga hjá Ambaga. Tækniþróunarsjóður Rannís hefur styrkt verkefnið.
5.
Hvernig skrái ég mig á biðlistann? Spennandi!
Drífðu þig á lesa.app/is/bidlisti og skráðu netfangið þitt! Þú færð spennandi tilkynningar á leiðinni, og um leið og LESA opnar fyrir nýja notendur geturðu bú
6.
Hvernig er LESA frábrugðið hefðbundnum bókum?
Þrennt greinir LESA frá hefðbundnum bókum. Í fyrsta lagi eru 365 sögur á ári í boði á þremur erfiðleikastigum, svo barnið fær alltaf efni við hæfi. Í öðru lagi er lesturinn settur upp sem leikur með stigakerfi, persónum og Leikvellinum, sem hvetur barnið til að æfa sig daglega. Í þriðja lagi mælir LESA framfarir í lesfimi, lesskilningi og lestraránægju og veitir forsjáraðilum yfirsýn sem bækur bjóða ekki upp á.
7.
Er LESA í boði utan Íslands?
Ekki enn. Fyrsta útgáfan er hönnuð fyrir íslenskan markað og íslenskt skólakerfi. Útgáfa á erlendum mörkuðum er fyrirhuguð í skrefum.
8.
Fyrir hvaða aldur er LESA hannað?
LESA er hannað fyrir börn í 1.–4. bekk, um það bil 6–10 ára. Erfiðleikastigin ná yfir aldursbilið 3–12 ára en megináherslan er á 6–9 ára börn. Eldri leikskólabörn sem þekkja bókstafi og hljóð geta einnig nýtt sér einföldustu sögurnar.
9.
Getur barn í 3.–4. bekk haft gagn af LESA?
Já. Sögurnar eru í boði á þremur erfiðleikastigum og það þyngsta inniheldur flóknari orð og setningar ásamt lengri texta sem hentar börnum í 3.–4. bekk vel. Forsjáraðilar geta breytt erfiðleikastiginu hvenær sem er í stillingum.
10.
Geta leikskólabörn notað LESA?
Já, ef barnið þekkir grunnstafina og hljóð þeirra. LESA er hannað fyrir börn sem eru tilbúin að lesa orð, setningar og sögur. Fyrir yngri börn sem eru enn að læra stafina henta öpp eins og Graphogame eða Málhljóðavaktin betur sem fyrsta skref.
11.
Hversu lengi ætti barnið að nota LESA daglega?
Stuttur og reglulegur lestur skilar meiri árangri en langur og óreglulegur. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mælir með að börn lesi í 15 mínútur á hverjum degi og hægt er að velja lestrarmarkmið í appinu: 10, 15, 20 eða fleiri en 20 mínútur á dag.
12.
Þarf barnið að kunna að lesa áður en það byrjar?
Já, það er betra ef barnið er farið að tengja saman stafi og mynda orð. Fyrir börn sem eru nýfarin að tengja saman orð mælum við með léttasta þrepinu, fyrir þau sem eru farin að lesa setningar hentar miðlungsþrepið og fyrir þau sem eru komin lengra og farin að lesa heilar sögur hentar erfiðasta þrepið líkast til best.
13.
Hvað eru margar sögur í LESA?
Ný saga á hverjum degi. 365 sögur birtast yfir árið og hver saga er í boði á þremur erfiðleikastigum. Samtals eru það 1.095 útgáfur af sögum.
14.
Hver skrifar sögurnar?
Ritstjórn LESA skrifar grunninn að öllum sögunum. Þar á meðal persónur, vikuleg þemu, sérstaka daga og fleira. Börn sem nota LESA yfir allt árið fá þjálfun í öllum helstu stöfum, hljóðum og orðum sem börn þurfa að læra á þessum aldri og var farið yfir öll helstu viðmið í samvinnu við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Sögusmiðjan okkar (byggir á spunagreind) fullvinnur sögurnar út frá þessum ramma/forskrift. Kerfið athugar sjálfkrafa hvort hver saga sé á réttu þyngdarstigi og hvort íslenskan sé rétt, og standist saga ekki kröfurnar er hún gerð aftur. Fagleg ritstjórn fer að lokum yfir allar sögur, myndir og spurningar og samþykkir þær áður en þær birtast börnum.
15.
Tengjast sögurnar lífinu á Íslandi?
Já. Sögurnar eru skrifaðar á íslensku og byggjast á aðalnámskrá. Persónur og söguþræðir tengjast íslensku samfélagi og menningu, til dæmis 17. júní, öskudeginum og jólunum. Þetta er meðvituð ákvörðun; margt erlent lestrarefni býður upp á þýddar sögur sem missa íslenska samhengið.
16.
Kemur ný saga út á hverjum degi?
Já. Ný saga með nýjum myndum birtist á hverjum morgni, merkt deginum. Ekki er hægt að lesa fram í tímann, en barnið getur lesið sömu söguna eins oft og það vill. Markmiðið er að gera daglegan lestur að vana.
17.
Hvernig er erfiðleikastig sagnanna ákveðið?
Í upphafi metur forsjáraðili getu barnsins (barnið getur lesið einföld orð / einfaldar setningar / sögur með flóknari orðum) og velur þannig eitt af þremur erfiðleikastigum: Létt, Miðlungs eða Erfitt. Forsjáraðili getur breytt stiginu hvenær sem er í stillingum. Sjálfvirk aðlögun út frá lestri barnsins er á áætlun í síðari útgáfum.
18.
Get ég breytt erfiðleikastiginu?
Já. Í lesstillingum geta forsjáraðilar hækkað eða lækkað erfiðleikastig hvers barns hvenær sem er. Athugið að breytingar á erfiðleikastigi geta haft áhrif á tölfræðina í foreldrayfirlitinu.
19.
Hvað ef saga hentar ekki barninu mínu?
Barnið getur gefið sögunni einkunn í lokin. Ritstjórn LESA fer yfir einkunnirnar og nýtir þær til að bæta úrvalið eða skipta út sögum sem ná ekki til barnanna. Einnig er hægt að senda athugasemdir í Hafðu samband forminu.
20.
Hvernig virkar LESA frá degi til dags?
Barnið opnar smáforritið, sér sögu dagsins og les hana. Á tveimur stöðum í sögunni og í lok hennar birtast léttar spurningar sem kanna lesskilning/læsi. Að lestri loknum er barnið einfaldlega spurt hvort sagan hafi verið skemmtileg (já/nei). Leikvöllurinn opnast þann dag þegar saga hefur verið lesin eða þegar barnið hefur lesið í 10 mínútur eða meira. Eftir því hversu duglegt barnið er að lesa og svara rétt safnar það merkjum í Skólatöskuna sína, Skólavinum, sem eru persónur úr LESA, og sögum á Sögusafninu.
21.
Hvað eru lesskilningsspurningar?
Léttar spurningar sem birtast á tveimur til þremur stöðum í sögunni. Þær kanna hvort barnið hafi skilið textann og halda athygli þess við lesturinn. Svarið er alltaf sannreynanlegt úr textanum sjálfum og spurningarnar eru kvarðaðar að erfiðleikastigi sögunnar. Þeim er ætlað að styðja við lesturinn, ekki að prófa barnið, og það er í lagi að svara rangt.
22.
Hvernig könnum við lestraránægju?
Með einfaldri spurningu í lok hverrar sögu: Var sagan skemmtileg (já/nei)? Svörin mynda smám saman mynd af áhugasviði barnsins og hjálpa ritstjórn LESA að sjá hvaða sögur virka og hverjar þarf að bæta. Forsjáraðilar geta fylgst með þróun lestraránægju yfir tíma.
23.
Hvað er Sögusmiðjan (LESA Story Engine)?
Sögusmiðjan er kerfið sem tengir saman efnivið úr gagnagrunni LESA (orðaforða, hljóð, lengd, sögugrunna, þema vikunnar, sögu dagsins, persónur og persónuheim LESA) og spunagreind til að semja sögur og halda utan um ritstjórnarferlið. Hún framleiðir hverja sögu á þremur erfiðleikastigum, mælir þyngd textans með reiknanlegum kvörðum og stýrir myndgerðinni eftir samhengi sögunnar og föstum persónulýsingum svo persónur haldist eins milli síðna. Sögurnar fylgja viðmiðum MMS og eru yfirfarnar af sérfræðingum í íslensku áður en þær birtast.
24.
Get ég slökkt á tilkynningum?
Já. Í innleiðingarferlinu spyrjum við hvort þú viljir fá hnipp (tilkynningar). Því er alltaf hægt að breyta í stillingum, sem og tilkynningum í tölvupósti. Þar velurðu einnig tíma og tíðni lestrarhnippa og stýrir póstum á borð við vikulegt framvinduyfirlit og Fróðleiksmola LESA.
25.
Hvað er Leikvöllurinn?
Leikvöllurinn er hvata- og verðlaunakerfi LESA og skiptist í þrennt: Sögusafnið, þar sem barnið finnur lesnar sögur, sögur í lestri og uppáhaldssögur; Skólatöskuna, þar sem merki og viðurkenningar safnast; og Skólavini, karaktera sem barnið vinnur sér inn með lestri. Markmiðið er að gera lesturinn að daglegum og skemmtilegum vana.
26.
Eru alvöru peningaviðskipti í Leikvellinum? 🎮
Nei, alls ekki! Lestrarreikningurinn og hlutirnir sem hressu krakkarnir vinna sér inn á Leikvellinum hafa ekkert peningalegt gildi. Það er ekki hægt að skipta þeim út fyrir peninga, flytja þá á milli reikninga eða nota þá utan LESA. Það er sko alls ekki hægt að kaupa þessar flottu mínútur með alvöru peningum — krakkarnir verða einfaldlega að lesa til að vinna sér þær inn! Áfram lestur!
27.
Er hægt að kaupa eitthvað inni í LESA?
Nei. Í LESA eru engin kaup inni í smáforritinu og barnið getur ekkert keypt, hvorki óvart né viljandi. Allt á Leikvellinum vinnst eingöngu með lestri. Eina greiðslan er áskriftin sjálf, sem forsjáraðili gengur frá í gegnum App Store eða Google Play.
28.
Hvað verður um lesmínúturnar mínar ef ég hætti við áskriftina? Engar áhyggjur, við finnum út úr því!
Þegar áskrift lýkur frosna allar lestrarstundir og dót á leikvellinum — og sko, ekki er hægt að skipta þeim út fyrir peninga eða flytja þau annað! Þetta er algjör staðalregla fyrir svona skemmtileg verðlaunakerfi í öppum. 🌟
29.
Á hvaða tækjum virkar LESA?
LESA er fyrst og fremst hannað fyrir spjaldtölvur en virkar einnig í snjallsímum. Bæði iOS og Android eru studd. Vefútgáfa fyrir tölvur er á dagskrá síðar meir.
30.
Þarf nettengingu til að nota LESA?
Já, í fyrstu útgáfunni þarf nettengingu þar sem sögurnar hlaðast beint frá netþjóni. Stefnt er að því að bjóða upp á lestur án nettengingar í síðari útgáfum.
31.
Hvaða útgáfu af iOS eða Android þarf?
Lágmarkskröfur verða birtar í App Store og Google Play við útgáfu. Mælt er með tveimur nýjustu iOS-útgáfunum eða Android 10 og nýrra.
32.
Get ég notað LESA í vafra eða tölvu?
Nei, fyrsta útgáfan er eingöngu app fyrir iOS og Android. Vefútgáfa gæti bæst við síðar.
33.
Hvað geri ég ef appið hrynur eða frýs?
Lokaðu appinu og opnaðu það aftur. Ef það dugar ekki skaltu endurræsa tækið og athuga hvort uppfærsla sé í boði í App Store eða Google Play. Ef vandamálið er viðvarandi skaltu senda okkur línu í gegnum Hafðu samband formið og taka fram hvaða tæki og stýrikerfi þú notar.
34.
Hvað kostar LESA?
Áskrift kostar 1.990 kr. á mánuði í ársáskrift (23.880 kr. á ári, 25% sparnaður) eða 2.650 kr. á mánuði í mánaðaráskrift. Verðin birtast einnig í App Store og Google Play. Skólar fá sérstök kjör. Verð geta tekið breytingum skv. viðskiptaskilmálum LESA.
35.
Er frír prufutími í boði?
Já. Ný áskrift hefst á 7 daga fríum prufutíma. Prufutíminn breytist sjálfkrafa í áskrift við lok hans nema henni sé sagt upp áður.
36.
Er fjölskylduáskrift í boði?
Já. Hægt er að skrá allt að þrjá LESARA (barnaprófíla) undir einum reikningi forsjáraðila án aukakostnaðar. Hvert barn fær eigin prófíl.
37.
Hvernig segi ég upp áskriftinni?
Ef áskriftin var keypt í gegnum App Store eða Google Play er henni sagt upp í stillingum hjá Apple eða Google; LESA getur ekki sagt henni upp fyrir þig. Ef skráð var beint hjá LESA er hægt að segja upp í stillingum forsjáraðila eða í gegnum Hafðu samband formið. Uppsögn tekur gildi í lok yfirstandandi tímabils.
38.
Hvenær er rukkað og hvernig virka endurnýjanir?
Áskriftin er greidd fyrirfram, mánaðarlega eða árlega. Hún endurnýjast sjálfkrafa í lok hvers tímabils á gildandi verði nema henni sé sagt upp áður. Verðbreytingar eru tilkynntar með fyrirvara í samræmi við reglur appverslananna.
39.
Hvaða greiðslumátar eru í boði?
Greiðslur fara í gegnum Straum (greiðslulausn byggða á Adyen) og áskriftartækni frá Repeat. Hægt er að greiða með kredit- og debetkortum (Visa og Mastercard) auk Apple Pay og Google Pay. LESA geymir engar kortaupplýsingar.
40.
Sæl/l! Er hægt að fá endurgreitt ef krakkinn minn keypti eitthvað óvart? Engar áhyggjur, svona gerist!
Já, endilega hafðu samband við okkur á support@lesa.app innan hæfilegs tíma frá kaupunum og við munum glaðhlökkust hjálpa þér! Við mælum sérstaklega með því að virkja foreldraeftirlit á tækinu þínu (Apple „Spyrja áður en keypt er“, kaupsamþykki í Google Play) til að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur í framtíðinni! Húrrí!
41.
Gildir 14 daga réttur til að falla frá kaupum?
Já. Samkvæmt íslenskum neytendalögum og reglum ESB er 14 daga frestur til að falla frá áskrift að stafrænu efni. Undantekning gildir ef aðgangur að efninu hefur þegar verið veittur. Láttu okkur vita í gegnum Hafðu samband formið áður en fresturinn rennur út.
42.
Hvernig stofna ég foreldraaðgang?
Sæktu LESA í App Store eða Google Play og opnaðu smáforritið. Innleiðingarferlið leiðir þig í gegnum skráninguna: þú skráir upplýsingar um þig sem forsjáraðila, samþykkir skilmála og persónuverndarstefnu og stofnar prófíla fyrir allt að þrjú börn.
43.
Hvernig stofna ég prófíl fyrir barnið mitt?
Það er hluti af innleiðingarferlinu. Skráð er notendanafn (þarf ekki að vera raunverulegt nafn), fornafn (hann, hún eða annað), fæðingarár og -mánuður og grunnskóli barnsins ef við á. Einnig er hægt að bæta við barni síðar í stillingum.
44.
Get ég stofnað marga prófíla undir einum reikningi?
Já. Hægt er að stofna allt að þrjá barnaprófíla undir sama reikningi, hvort sem er í innleiðingarferlinu eða síðar í stillingum. Hvert barn fær eigið sögusafn, karakter, erfiðleikastig og lestrarmarkmið.
45.
Hvernig kemst ég inn á foreldrasvæðið?
Stillingar forsjáraðila eru varðar með fjögurra stafa lykilnúmeri (PIN) sem forsjáraðili býr til við skráningu. Börn komast því ekki í stillingar eða aðgerðir sem eru eingöngu ætlaðar forsjáraðilum. Ef rangt númer er slegið inn of oft læsist svæðið tímabundið og hægt er að endurstilla lykilnúmerið.
46.
Þarf barnið að gefa upp netfang?
Nei. LESA biður börn aldrei um netfang. Eina netfangið sem er geymt er netfang forsjáraðila, enda er nauðsynlegt að notast við reikning og netfang forsjáraðila.
47.
Þarf að skrá rétt nafn barnsins?
Nei. Skjáheiti barnsins og nafn foreldris í appinu þurfa ekki að vera raunveruleg nöfn. Nafnið er eingöngu notað til að gera upplifunina persónulegri, ekki til auðkenningar.
48.
Hvaða gögnum safnar LESA um barnið mitt?
Aðeins því sem er nauðsynlegt fyrir notkun appsins: prófílupplýsingum (skjáheiti, persóna, lestrarmerki, fæðingarmánuður og -ár), námsgögnum (lesnar sögur, lestrartími, hraði, skilningur og einkunnir barnsins) og tæknilegum upplýsingum um tækið, án auglýsingaauðkenna. Engum viðkvæmum gögnum er safnað, svo sem heilsufars- eða lífkennagögnum.
49.
Hvar eru gögnin geymd?
Öll gögn eru geymd á öruggum netþjónum innan Evrópu (EES). Þau eru dulkóðuð, bæði á leiðinni milli tækisins og netþjónanna og í geymslunni sjálfri, svo óviðkomandi geta ekki lesið þau. Aðeins örfáir starfsmenn hafa aðgang að gögnunum og öll notkun er skráð.
50.
Selur LESA gögn barna eða foreldra?
Nei. LESA hvorki selur, leigir né deilir persónuupplýsingum barna eða foreldra með þriðja aðila. Það á einnig við um það sem bandarísku CCPA-lögin skilgreina sem sölu eða deilingu.
51.
Eru auglýsingar í appinu?
Nei. Í LESA eru hvorki borðar, myndbandsauglýsingar, kostaðar sögur né auglýsingaleikir.
52.
Notar LESA auglýsingaauðkenni?
Nei. LESA notar hvorki IDFA, AAID né önnur viðvarandi auglýsingaauðkenni í barnaappinu. Barninu er ekki fylgt eftir milli appa eða vefsíðna.
53.
Hvernig eyði ég gögnum barnsins míns?
Tvær leiðir eru í boði: í stillingum forsjáraðila undir „Eyða prófíl“ eða með tölvupósti á privacy@lesa.app. Beiðnum er svarað innan 30 daga frá staðfestingu á auðkenni.
54.
Hvað verður um gögnin ef ég hætti í áskrift?
Persónuupplýsingum barnsins er eytt úr virkum kerfum innan 30 daga frá því að prófíl eða aðgangi er lokað. Dulkóðuð öryggisafrit eyðast í reglulegri hreinsun innan 90 daga. Bókhalds- og skattagögn eru geymd eins og lög krefjast, að jafnaði í sjö ár.
55.
Er LESA í samræmi við GDPR og íslensk persónuverndarlög?
Já. LESA er hannað í samræmi við GDPR, GDPR-K og lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Lagagrundvöllur vinnslunnar er samþykki foreldra (8. gr. GDPR), samningsbundin nauðsyn og lögmætir hagsmunir.
56.
Er LESA í samræmi við COPPA?
Já. Fyrir börn yngri en 13 ára í Bandaríkjunum fylgir LESA COPPA-reglunum: lágmarksgagnasöfnun, staðfest samþykki foreldra áður en gögnum er safnað og engin atferlismiðuð auglýsingatækni í barnaappinu.
57.
Hver er tengiliður LESA vegna persónuverndar?
Persónuverndarmál fara í gegnum privacy@lesa.app og persónuverndarteymi LESA svarar í samræmi við GDPR. Einnig er hægt að senda kvörtun til Persónuverndar á personuvernd.is.
58.
Notar LESA spunagreind?
Já. Sögusmiðjan notar máltækni til að lengja sögurnar og passa upp á að hver saga fylgi ákveðinni forskrift: lengd, erfiðleikastigi, orðum, stöfum, hljóðum og fleiru. Hver saga fer í gegnum sjálfvirkt gæðaeftirlit þar sem Sögurýnir, gæðagreind LESA, metur hvort sagan fylgi þema, persónum og viðmiðum MMS, og er að lokum yfirfarin af íslenskum málfarssérfræðingi áður en hún birtist börnum. Spunagreindin er hjálpartæki í ritstjórnarferlinu, ekki staðgengill ritstjórnar.
59.
Eru gögn barnsins notuð til að þjálfa spunagreind?
Nei. Persónuupplýsingar barna eru aldrei sendar til eða notaðar til að þjálfa ytri spunagreindarlíkön. Samstarfsaðilar fá eingöngu ritstjórnarleg markmið og eru samningsbundnir um að nota ekki gögn barna í eigin þágu.
60.
Fara manneskjur yfir sögur sem spunagreind semur?
Já. Hver saga er yfirfarin af sérfræðingi í íslensku áður en hún birtist barninu. Standist saga ekki mælanleg viðmið er hún keyrð aftur sjálfvirkt, og sögur sem standast ekki gæðakröfur ritstjórnar eru endurskrifaðar, uppfærðar eða teknar út og endursamdar.
61.
Tekur spunagreind ákvarðanir um barnið mitt?
Nei. Forsjáraðilar velja erfiðleikastig og stýra öllum stillingum og hafa því alltaf lokaorðið. Síðar meir munum við geta mælt með erfiðleikastigi út frá tölfræði barnsins, en forsjáraðili tekur alltaf ákvörðunina. LESA fellur ekki undir 22. gr. GDPR um sjálfvirka ákvarðanatöku.
62.
Get ég gert athugasemd við sögu eða óskað eftir leiðréttingu?
Já. Sendu ábendingar í gegnum Hafðu samband formið. Einkunnir barna hjálpa ritstjórninni einnig að finna sögur sem ganga ekki vel; slíkar sögur geta verið endurskrifaðar eða teknar út.
63.
Styður LESA börn með lesblindu?
LESA er ekki greiningartæki fyrir lesblindu en býður upp á stillingar sem nýtast mörgum börnum með lesblindu. Fingralestur lætur orðin lýsast upp á meðan lesið er, eitt orð eða eina línu í einu, og hægt er að velja áherslulit. Einnig nýtast aðgengisstillingar tækisins, svo sem stækkun á skjá, feitletrun og litasíur, og stillingar í smáforritinu sjálfu fyrir leturstærð, leturþykkt og litaandstæður eru á áætlun. Ef barnið er með lesblindu mælum við með samráði við skólann um hvað hentar best.
64.
Styður LESA sjónskerta notendur?
Í fyrstu útgáfu eru ekki sérstakar sjónstillingar í smáforritinu sjálfu, en aðgengisstillingar tækisins nýtast vel: bæði iOS og Android bjóða upp á stækkun á skjá, feitletrun, aukin birtuskil og litasíur. Sjónstillingar í smáforritinu sjálfu eru á áætlun.
65.
Er hægt að breyta leturstærð og litum?
Ekki í smáforritinu sjálfu í fyrstu útgáfu; slíkar stillingar eru á áætlun. Á meðan nýtast aðgengisstillingar tækisins, svo sem stækkun á skjá, feitletrun og litasíur.
66.
Er hægt að láta lesa textann upphátt?
Ekki í fyrstu útgáfu. Talgerving (texti í tal) er á áætlun fyrir síðari útgáfur. Fyrsta útgáfan leggur áherslu á sjálfstæðan lestur barnsins.
67.
Styður LESA tvítyngd börn?
Fyrsta útgáfan er á íslensku og styður við íslenskunám. Útgáfur á fleiri tungumálum eru í undirbúningi fyrir erlenda markaði.
68.
Hvað mælir LESA?
LESA mælir þrjá grunnþætti: náttúrulegan leshraða (orð á mínútu), lesskilning (hlutfall réttra svara) og lestraránægju (mat barnsins á sögunum), auk þess sem dregið er saman hversu margar sögur barnið les. Í foreldrayfirlitinu birtist einnig LESA skor sem dregur stöðu barnsins saman í eina tölu. Saman gefa mælikvarðarnir fyllri mynd en hefðbundið lestrarhraðapróf eitt og sér.
69.
Get ég fylgst með árangri barnsins í appinu?
Já. Foreldrayfirlitið sýnir LESA skor, lestrarhraða, lesskilning, lesnar sögur, meðallestur á dag, lestraránægju, erfiðleikastig og lestrardaga í röð, ásamt fróðleiksmolum og ráðum til forsjáraðila.
70.
Er árangur einstakra barna sýnilegur öðrum?
Nei. Upplýsingum um einstök börn er aldrei deilt með almenningi, öðrum foreldrum eða öðrum skólum.
71.
Tengjast gögn LESA PISA eða lesskimun MMS?
Nei. LESA er ekki staðlað próf heldur sjálfstætt mælingakerfi sem fylgist með náttúrulegum lestrarhraða, lesrunu (e. streaks), lesskilningi/læsi og lestraránægju. Samantekin tölfræði getur nýst skólum, sveitarfélögum og menntayfirvöldum, en aðeins á grundvelli sérstaks samkomulags og aldrei með persónuupplýsingum um einstök börn.
72.
Hvað er náttúrulegur lestrarhraði?
Hefðbundin lestrarpróf mæla hraða við prófaðstæður þar sem barnið les fyrir prófdómara. LESA mælir hraðann í daglegum lestri í appinu, reiknaðan út frá tíma milli flettinga. Það gefur mynd af raunverulegum lestrarhraða án þess álags sem fylgir formlegu prófi.
73.
Geta skólar notað LESA?
LESA er hannað fyrir bæði heimili og skóla. Unnið er að því að opna fyrir skóla, en reiknað er með að það verði ekki fyrr en 2027, enda háð samningum, heimildum og vinnslusamningi um persónuupplýsingar. Sérstakt notendaviðmót fyrir skóla og kennara hefur þegar verið hannað.
74.
Hvernig hefur skóli samband við LESA?
Einfaldast er að nota Hafðu samband formið á lesa.is. Prófanir standa yfir með Kópavogsbæ og Salaskóla og fjöldi skóla hefur þegar sýnt verkefninu áhuga.
75.
Hvað sjá kennarar spennandi í LESA? Hissa! 🎉
Kennarar geta fylgst með frábærum lestrarframförum nemenda í bekknum sínum! Þeir sjá lesnar sögur, lestrartíma, reynslu, lesskilning, núverandi erfiðleikastig og hversu mikinn lestraráhuga krakkarnir hafa. Kennarar sjá hins vegar engar greiðslu- eða innheimtuupplýsingar hjá foreldrum.
76.
Sæll! Geta kennarar skoðað gögn um börn hjá öðrum kennurum? Neibb, svo auðvelt er það ekki! 🌟
Nei, aldeilis ekki! Kennarar sjá bara börnin í sínum eigin bekk. Skólastjórar og sveitarfélög fá aðeins að sjá samantektir, og þær eru að sjálfsögðu nafnlausar (fyrir að minnsta kosti fimm börn) svo það sé alveg öruggt að enginn geti þekkt burtu litlu stjörnurnar okkar!
77.
Hver er ábyrgðaraðili gagna þegar skóli notar LESA?
Sveitarfélagið eða skólinn er ábyrgðaraðili vinnslu og LESA er vinnsluaðili. Það er skilgreint í vinnslusamningi í samræmi við lög nr. 90/2018 og GDPR. Foreldrar halda öllum réttindum sínum gagnvart LESA þótt aðgangur sé í gegnum skóla.
78.
Er LESA samþykkt af MMS?
LESA vinnur í samráði við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) og fylgir námskrárramma stofnunarinnar um orðaforða, hljóðaaðferð og textalengd fyrir yngstu bekkina. Sögurnar eru rýndar af sérfræðingum í íslensku áður en þær birtast.
79.
Hvaða skólar nota eða prófa LESA?
Tilraunahópur er starfræktur í Salaskóla í samstarfi við Kópavogsbæ, þar sem lestrarárangur er mældur vísindalega í samanburði við stöðluð lesfimipróf. Samningaviðræður standa yfir við Kópavogsbæ um að verða fyrsta sveitarfélagið til að taka LESA í notkun í leik- og grunnskólum sínum. Nýir samningar verða kynntir á lesa.is.
80.
Hvað kostar LESA fyrir skóla eða sveitarfélög?
Sérstök verðskrá gildir fyrir skóla og miðast við fjölda nemenda. Nánari upplýsingar fást í gegnum Hafðu samband formið.
81.
Hver stendur á bakvið þróun LESA?
LESA er þróað af Revera ehf., en á bak við Revera stendur lítið teymi með stóra drauma. Búið er að stofna félagið LESA ehf. og stefnt er að því að færa reksturinn alfarið yfir á nýja félagið á næsta ári. Birgir Hrafn Birgisson er stofnandi og framkvæmdastjóri LESA. Meðstofnendur eru Þórdís Jóna Ingigerðardóttir tæknistýra og Bjarki Steinn Birgisson hönnunarstjóri.
82.
Með hverjum vinnur LESA?
LESA vinnur með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) að námsefni og ramma, Miðeind að íslenskri máltækni og spunagreind og Ambaga að upplýsingaöryggi. 14islands kom að grunnhönnun á fyrstu stigum verkefnisins. Ráðgjafar verkefnisins eru meðal annars Dr. Hermundur Sigmundsson, sérfræðingur í lestrarrannsóknum, Hrafnhildur Hreinsdóttir íslenskusérfræðingur og Sigurður Haukur Birgisson, sérfræðingur í máltækni og spunagreind.
83.
Hefur LESA fengið opinbera styrki?
Já. Verkefnið hefur fengið FRÆ- og Sprotastyrki frá Tækniþróunarsjóði (Rannís).
84.
Hvar eru höfuðstöðvar LESA?
Í Reykjavík. LESA ehf. er skráð að Borgartúni 29, 105 Reykjavík.
85.
Hvernig hef ég samband við LESA?
Öll erindi fara í gegnum Hafðu samband formið á lesa.is, hvort sem um er að ræða almennan stuðning, persónuvernd eða samstarf. Heimilisfang: Borgartún 29, 105 Reykjavík.
86.
Er LESA opið fyrir fjárfestingum?
Verkefnið er nú fjármagnað með eigin fé og styrkjum frá Rannís. Möguleg englafjárfestingarlota er á frumstigi og engir samningar hafa verið gerðir. Áhugasamir geta haft samband á birgir@revera.is.
87.
Hverjir eru helstu markhópar LESA?/Hvert er aðalmarkmið LESA? Skoðum það saman! 🎉
Fyrsti markaðurinn: Ísland! 🎉 Svo ætlum við að stækka og þá bætast við Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Eistland og Pólland! 🚀 Í þriðja áfanga stefnum við á Bandaríkin, Bretland, Singapúr og Holland. Við veljum markaðina vandlega eftir því hvar flestir foreldrar nota snjallsíma (yfir 90%!), hvar kaupmáttur er góður og hvar tæknin fær að blómstra í skólastarfi fyrir yngstu nemendurna! 🌟
88.
Hvernig sker LESA sig úr á alþjóðavettvangi? Látum til skara skríða!
Þrennt það helsta: Sagnaveitan (LESA Story Engine) sem tryggir botnlaust flæði af gæðasögum sem eru fullkomlega sniðnar að þínu getustigi; einstök áhersla á að sökkva sér ofan í eitt tungumál í einu; áhersla á málsvæði þar sem stóru tæknirisarnir í námi láta lítið á sér bera; og svo þrívíð mæling á árangri (reipbrennandi lestur, skilningur og lestrargleði) sem er fágæt sjón í þessum geira! Áskriftarmódelið okkar er B2B2C — skólarnir eru okkar traustu bandamenn sem opna dyrnar fyrir foreldraáskriftum.
89.
Hvenær skyldi LESA verða algjörlega sjálfbært? Það verður spennandi að sjá!
Fjárhagsáætlanir sýna að verkefnið verður alveg sjálfbært þegar full alþjóðleg útbreiðsla hefst með tilheyrandi sól og gleði sumarið 2027! ☀️
90.
H
LESA er sem stendur fjármagnað með eigin fjármunum Revera, ásamt FRÆ- og SPROTA-styrkjum frá Tækniþróunarsjóði. Engir utanaðkomandi fjárfestar hafa skuldbundið sig til að fjármagna LESA fyrir fyrstu útgáfu. Vúhú, áfram gakk!


