LESA Opnunarhátíð
LESA opnar loksins! Komdu og kynnstu leiknum, hugmyndinni á bak við LESA og því hvernig lestur getur orðið að leik. Við hlökkum til að sjá þig!
Um viðburðinn
LESA opnar 17. ágúst! Hér kynnumst við LESA, hugmyndinni á bak við appið og því hvernig lestur getur orðið að leik. Á dagskránni verða erindi frá fólki sem styður við lestur barna. Við ætlum að fagna með fólkinu sem lét LESA verða að veruleika, svokallaðir lesarar!

Dagskrá

Vigdís Hafliðadóttir
Tónlistarkona og grínisti
Kynnir

Hjörtur Hilmarsson
Framkvæmdastjóri 14islands
Hönnuð lesgleði

Guðbjörg Rut Þórisdóttir
Sérfræðingur á sviði málþroska og læsis
MMS með erindið: Ný kynslóð námsgagna

Magnús
Formaður Kennarasambands Íslands
Nýsköpun byrjar í kennslustofunni

Linda Heimisdóttir
Framkvæmdastjóri Miðeindar
Spunagreind til góðs
Skráðu þig á viðburðinn
Skráningin tekur innan við mínútu. Láttu okkur vita hve mörg þið komið.
Algengar spurningar
Allt sem þú þarft að vita
1.
Hvað kostar inn?
Það er ókeypis á útgáfuviðburðinn, en skráning er nauðsynleg þar sem pláss er takmarkað.
2.
Hvenær og hvar er viðburðurinn?
Viðburðurinn er 17. ágúst í Salnum í Kópavogi. Húsið opnar kl. 14:30 og dagskráin hefst stundvíslega frá kl 15:00 til 16:00. Við mælum með að mæta tímanlega.
3.
Hvernig skrái ég mig?
Smelltu á Skrá mig á útgáfuviðburð og fylltu út formið; nafn, og netfang.
4.
Eru börn velkomin?
Já börn eru velkomin á opnunarhátíð LESA enda er lestrarleikurinn sérsniðin að þeim.
5.
Verður eitthvað skemmtilegt í boði?
Já! Við munum vera með LESA varning fyrir börnin, bæði fríkeypis og til sölu. Límmiðar, bolir, derhúfur og fleira.


