Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo

Sæktu LESA og breyttu lestrinum í ævintýri

Sæktu LESA og breyttu lestrinum í ævintýri

Skemmtilegar sögur, leikur og lærdómur bíða í LESA. Sæktu lestrarleikinn í dag og gefðu barninu þínu nýja leið til að njóta lestrar.

LESA er aðeins í boði á Íslandi eins og er.

40% íslenskra barna ná ekki grunnhæfni í lestri.
LESA er að breyta því — með sögum sem fanga athygli
og leik sem verðlaunar hverja lesna síðu

Sögur sem halda athyglinni

Fjölbreyttar sögur á íslensku, sniðnar að lestrarstigi barnsins. Það byrjar á sögu sem það ræður við og vex með henni.

Leikur að launum

Eftir hvern lestur opnast leiksvæðið. Barnið safnar stigum, velur sér persónu og klifrar upp borðin.

Þú sérð framfarirnar

Lesin orð á mínútu, lesskilningur og hversu reglulega barnið les — allt á einum stað.

Lestur alla daga

Stuttar lotur sem barnið ræður við. Nokkrar mínútur á dag byggja upp lestrarfærni sem endist.

Af hverju LESA?

Vandinn sem við leysum

Um 40% íslenskra nemenda ná ekki grunnhæfni í lestri. LESA var byggt til að breyta því, með sögum sem börn vilja lesa og mælingum sem sýna foreldrum og kennurum hvað er raunverulega að gerast.

0%

0%

Lestraránægja

365 sögur, þrjú erfiðleikastig

Auðvelt

Auðvelt

Auðvelt

Miðlungs

Miðlungs

Erfitt

Erfitt

365 sögur í þremur erfiðleikastigum, byggðar á faglegum grunni sem tekur tillit til allra stafa, hljóða og algengustu orða.

Ný saga á hverjum degi

Ný saga á hverjum degi, tengd íslensku menningardagatali. Bolludagur, sumardagurinn fyrsti, 17. júní og jólin eiga öll sínar sögur.

Sjálfvirk mæling
0
0
0
0

Sjálfvirk mæling á náttúrulegum leshraða, lesskilningi og lestraránægju. Foreldrar fá yfirsýn án þess að þurfa að skrá neitt.

Sjálfvirk mæling

Sjálfvirk mæling á náttúrulegum leshraða, lesskilningi og lestraránægju. Foreldrar fá yfirsýn án þess að þurfa að skrá neitt.

Algengar spurningar

Allt sem þú þarft að vita

1.
Hvað er LESA?

LESA er íslenskur lestrarleikur fyrir börn sem sameinar leik og lestur til að efla lesfimi, lesskilning og lestraránægju. Barnið les nýja sögu á hverjum degi, svarar léttum spurningum um efnið og safnar lestrarmínútum sem það getur nýtt á Leikvellinum, hvata- og verðlaunakerfi smáforritsins.

2.
Fyrir hverja er LESA?

LESA er hannað fyrir börn í 1.–4. bekk grunnskóla en hentar einnig leikskólabörnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í lestri. Í allra fyrstu útgáfu er áherslan á 1. bekk. Forsjáraðilar fá aðgang að yfirliti þar sem hægt er að fylgjast með framförum hvers barns.

3.
Á hvaða tungumáli er LESA?

Allt efni í LESA er á íslensku: sögur, spurningar, leiðbeiningar og viðmót. Efnið er skrifað og yfirfarið af íslenskum ritstjórum. Útgáfur á fleiri tungumálum eru fyrirhugaðar þegar appið verður gefið út utan Íslands.

4.
Hverjir standa á bak við LESA?

LESA er þróað af Revera ehf., íslensku fyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík. Stofnandi og framkvæmdastjóri er Birgir Hrafn Birgisson, meðstofnendur eru tæknistýran Þórdís Jóna Ingigerðardóttir og hönnunarstjórinn Bjarki Steinn Birgisson. Verkefnið er unnið í samstarfi við 14islands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), Miðeind og öryggissérfræðinga hjá Ambaga. Tækniþróunarsjóður Rannís hefur styrkt verkefnið.

5.
Hvernig skrái ég mig á biðlistann? Spennandi!

Drífðu þig á lesa.app/is/bidlisti og skráðu netfangið þitt! Þú færð spennandi tilkynningar á leiðinni, og um leið og LESA opnar fyrir nýja notendur geturðu búið til aðgang fyrir barnið þitt.

6.
Hvernig er LESA frábrugðið hefðbundnum bókum?

Þrennt greinir LESA frá hefðbundnum bókum. Í fyrsta lagi eru 365 sögur á ári í boði á þremur erfiðleikastigum, svo barnið fær alltaf efni við hæfi. Í öðru lagi er lesturinn settur upp sem leikur með stigakerfi, persónum og Leikvellinum, sem hvetur barnið til að æfa sig daglega. Í þriðja lagi mælir LESA framfarir í lesfimi, lesskilningi og lestraránægju og veitir forsjáraðilum yfirsýn sem bækur bjóða ekki upp á.

7.
Er LESA í boði utan Íslands?

Ekki enn. Fyrsta útgáfan er hönnuð fyrir íslenskan markað og íslenskt skólakerfi. Útgáfa á erlendum mörkuðum er fyrirhuguð í skrefum — fyrst til Norðurlandanna, Eistlands og Póllands, svo til Bretlands, Bandaríkjanna, Hollands og Singapúr.

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn