Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo

Fréttir

Á hliðarlínunni frá fyrsta degi

Birgir

Birgir

Fréttir

Nóvember 17, 2026

Tveggja ára samstarf við MMS og það sem sérfræðingar þeirra kenndu okkur um lestrarnám barna.

LESA björninn fagnar með dúskum

Daginn sem LESA opnaði í Salnum í ágúst hélt Guðbjörg Rut Þórisdóttir, sérfræðingur í málþroska og læsi hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), ræðu um samstarfið okkar. Mér varð hugsað til hennar í síðustu viku og Guðbjörg var svo væn að senda mér hana svo ég gæti lesið hana aftur í ró og næði.


Í ræðunni segist Guðbjörg hafa grúskað í tölvupóstinum sínum og fundið út að samtal okkar hófst í nóvember 2024. Það eru rétt rúm tvö ár og mig langar að nota tækifærið og þakka henni og MMS fyrir þann tíma.


Eitt af einkunnarorðum MMS er „að við höllum okkur fram“ og það höfum við séð í verki frá fyrsta fundi. Auk Guðbjargar höfum við átt samtöl við Þórdísi Jónu forstjóra, Katrínu, sviðsstjóra námsgagnasviðs, Önnu Björgu, sérfræðing í vefmálum, og Nóa, sérfræðing í stafrænni tækni og gervigreind. Þau hafa öll gefið okkur Bjarka, Þórdísi Jónu Ingigerðardóttur meðstofnanda mínum og þróunarteymi hjá Revera af tíma sínum.


Það sem við lærðum


Við Bjarki og Þórdís komum úr hugbúnaðargerð og vöruþróun og þurftum sjálf að læra margt um lestrarnám á stuttum tíma. Guðbjörg nefndi í ræðunni nokkur hugtök sem við þurftum að setja okkur inn í, eins og lesfimi, hljóðtengingu, áhugahvöt og vegin orð á mínútu. Hún útskýrði þau fyrir okkur oftar en einu sinni og alltaf af sömu þolinmæði.


Stærsta áskorunin var að stýra þyngd textans, þannig að sagan passi barninu í dag og þyngist hæfilega eftir því sem það nær betri tökum á lestrinum. Guðbjörg kenndi okkur að hefðbundnir læsileikaútreikningar horfa mest á ytri einkenni texta, eins og lengd málsgreina og hlutfall langra orða, en að orðaforði, setningagerð og samloðun ráði líka miklu um það hversu þungur texti er. Hún benti okkur jafnframt á að börn á fyrstu árum lestrarnáms vanti meira lesefni og það staðfesti hugmyndina sem LESA byggir á, að barnið fái nýja sögu á hverjum degi.


Sú þekking mótaði það hvernig við byggjum sögurnar. Hver saga í LESA verður til í þremur þrepum. Neðst er sögugrunnurinn með söguþemum, persónum, reglum, orða- og stafafjölda, bókstöfum, áhersluorðum og íslenskum hljóðum. Ofan á hann vinnur spunagreind sem lengir söguna eftir forskrift um lengd, erfiðleikastig, stafi og hljóð. Efst er ritstjórnin, þar sem fólk byggir sögugrunninn á íslenskri menningu og fer yfir allan texta, allar myndir og allar áskoranir áður en saga berst til barnanna. Gervigreindin vinnur því alltaf á milli tveggja þrepa sem fólk ber ábyrgð á.


Utan um þetta allt höfum við byggt Söguvélina, heildstætt kerfi sem heldur utan um sögurnar okkar frá fyrstu hugmynd þar til barnið les þær í appinu.


Ný kynslóð námsgagna


Í ræðunni í Salnum lýsti Guðbjörg því hvernig þessi nálgun gerir það mögulegt að auka magn þjálfunarefnis í lestri margfalt á við það sem MMS hefur fjármagn til að gefa út. Hún lagði líka áherslu á að mannshugurinn kæmi nærri ritstjórn og gæðamati textans og bætti svo við.


Hér er því um nýja kynslóð námsgagna að ræða sem er til komin vegna nýrra möguleika við gerð á námsefni.

Guðbjörg Rut Þórisdóttir, sérfræðingur í málþroska og læsi hjá MMS


Mér þótti vænt um að heyra þetta frá sérfræðingi sem hefur helgað starf sitt læsi barna. Fyrir lítið íslenskt sprotafyrirtæki er ómetanlegt að fá faglegt aðhald og hvatningu frá fólki sem þekkir lestrarnám betur en flestir.


Daginn eftir opnunina sendi Guðbjörg okkur Þórdísi stuttan póst og sagði að við vissum af þeim á hliðarlínunni áfram ef þörf krefði. Það hafa þau verið frá fyrsta degi.


Takk Guðbjörg, Þórdís Jóna, Katrín, Anna Björg og Nói.


Takk MMS.


Birgir Hrafn Birgisson, stofnandi LESA

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

Almannarómur

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

Almannarómur

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði
Almannarómur

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði
Almannarómur

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn