Fréttir
Næst er það fyrsta sætið

Birgir
Fréttir
LESA er næst mest sótta fræðsluforritið á App Store á Íslandi, beint á eftir Duolingo. Hér er af hverju það skiptir máli og af hverju við stefnum á fyrsta sætið.

Í kvöld opnaði ég listann yfir mest sóttu fræðsluforritin á App Store á Íslandi. Í öðru sæti, beint á eftir Duolingo, var LESA.
Ég staldraði aðeins við.
Duolingo er eitt stærsta menntaforrit í heimi með hundruð milljóna notenda og þúsundir starfsmanna. LESA er lítið íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með teymi sem telst á fingrum annarrar handar.
Ég segi það samt hreint út: Við ætlum okkur fyrsta sætið.
Af hverju skiptir þetta máli?
Þetta snýst ekki um stolt eins fyrirtækis, þó að stundin sé vissulega stór fyrir okkur.
Þetta snýst um það sem listinn segir okkur. Íslensk börn og foreldrar þeirra eru að velja íslenskt efni þegar það stendur til boða og stenst samanburð. Ég hef áður skrifað um það að stór hluti þess efnis sem börn velja sér sjálf er á ensku, í símanum, í leikjum og á samfélagsmiðlum. Ef íslenskt efni er ekki til staðar velja börnin ekki íslenskuna. Þau velja það sem vekur áhuga þeirra.
Listinn á App Store sýnir að þetta getur líka virkað í hina áttina. Þegar íslenskt efni er vandað og skemmtilegt velja börnin það. Áhuginn er ekki aukaatriði, hann er forsenda.
Viðbrögðin sem drífa okkur áfram
LESA kom út í ágúst. Síðan þá hafa viðbrögðin frá foreldrum, kennurum og börnunum sjálfum verið dásamleg. Hver einustu skilaboð sem við fáum hvetja okkur til að gera meira og gera það betur: Fleiri sögur, betri upplifun og fleiri börn sem finna gleðina í lestri.
Við höfum að langstærstu leyti fjármagnað LESA sjálf. Teymið er lítið en það leggur hjartað í hverja sögu og hverja persónu. Að sjá LESA við hliðina á stærstu menntaforritum heims á heimamarkaði staðfestir það sem ég hef lengi haldið fram: Íslenskt hugvit getur keppt við þá stærstu þegar það fær tækifæri til.
Við erum fleiri
Það gleður mig líka að sjá hve mörg góð íslensk forrit eru á listanum. Undralingur, Læsir og Evolytes eru öll að gera flotta hluti fyrir íslensk börn og ég hvet foreldra til að kynna sér þau.
Við erum nefnilega ekki keppinautar í stóra samhenginu. Við erum öll að vinna að sama markmiði, að íslensk börn hafi aðgang að vönduðu efni á sínu eigin tungumáli.
Þú getur hjálpað
Ef þú átt barn sem er að læra að lesa, prófaðu LESA.
Og ef þér líkar það, þá skiptir það okkur miklu máli að þú gefir okkur einkunn á App Store. Hver einasta einkunn hjálpar íslensku forriti að komast alla leið upp.
Takk fyrir okkur.
Við erum rétt að byrja.
Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi LESA.
LESA kemur út haustið 2026
Fróðleikur, fréttir og tilkynningar
Fylgstu með vegferð Lesa frá upphafi og sjáðu okkur styðja við lestur og varðveislu íslenskrar tungu














