Fréttir
Takk fyrir silfrið

Birgir
Fréttir
Vefur LESA hlaut silfur á 16. Lovie verðlaununum. Takk til teymisins, fjölskyldnanna sem nota LESA og dómnefndar Lovie.

Í dag kynnti Lovie vinningshafa ársins og vefur LESA fékk silfur í flokki menntavefja (Websites & Mobile Sites, Education). Mig langar að nota tækifærið og þakka fólkinu sem kom okkur hingað.
Takk, teymið
Vefurinn er hannaður og smíðaður af teyminu hjá Revera. Hönnuðir, forritarar og ritstjórar fundu leið til að segja foreldrum á fáum sekúndum hvað LESA er, fyrir hvaða börn og af hverju barn ætti að vilja lesa á hverjum degi. Við sendum vefinn inn í mars, fimm mánuðum áður en LESA opnaði, og þá var hann það eina sem foreldrar gátu séð af LESA. Takk fyrir alla vinnuna.
Takk, foreldrar, kennarar og börn
Frá því LESA opnaði 17. ágúst hafa foreldrar, kennarar og börn sent okkur skilaboð og ábendingar. Þau segja okkur hvað þarf að laga og hvaða sögur við eigum að skrifa næst. Þessi verðlaun eru líka ykkar.
Takk, Lovie
Lovie verðlaunin eru evrópsk systurverðlaun Webby verðlaunanna og á hverju ári berast um þúsund verkefni frá yfir 30 löndum. Google, Spotify og LEGO eru meðal fyrri verðlaunahafa og IKEA og Tesla hafa verið tilnefnd. Það gleður okkur mjög að sjá lítinn íslenskan lestrarleik á sama lista. Takk til dómnefndarinnar fyrir að gefa vefnum gaum.
Hvað gerist næst
Við ætlum að búa til skemmtilegasta lestrarleik í heimi. Við erum að opna LESA fyrir börnum utan Íslands og fyrsta landið bætist við í lok árs. Draumurinn er sá sami alls staðar: Börn sem biðja um eina sögu enn áður en þau fara að sofa.
Ef þú átt barn sem er að læra að lesa getur þú prófað LESA á lesa.app.
Takk fyrir okkur.
Við erum rétt að byrja.
Birgir, stofnandi LESA
Fróðleikur, fréttir og tilkynningar
Fylgstu með vegferð Lesa frá upphafi og sjáðu okkur styðja við lestur og varðveislu íslenskrar tungu



