Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
Logo
Logo filled
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo
LESA Logo

Tilkynningar

LESA lestrarleikur opnaði 17. ágúst

Birgir

Birgir

Tilkynningar

Ágúst 17, 2026

LESA er komið út með nýja sögu á hverjum degi, sem hjálpar börnum að byggja upp lesskilning, orðaforða og varanlega lestraránægju.

LESA lestrarleikurinn er formlega opnaður.


Á mánudaginn 17. ágúst fylltum við Salinn í Kópavogi. 150 manns mættu og fylltu salinn af fólki sem brennur fyrir lestri barna. LESA teymið, foreldrar, kennarar og menntayfirvöld, öll að vinna saman. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, toppaði svo daginn með því að opna leikinn formlega. Fyrir okkur sem stöndum á bak við verkefnið var þetta stór stund.


Af hverju LESA?


Við höfum áður skrifað um stöðuna hér á þessum vettvangi. Um helmingur drengja útskrifast úr grunnskóla með slakan lesskilning og læsi barna hefur mælst á niðurleið í könnun eftir könnun. Lestrarátök koma og fara og gera oft gagn, en varanleg breyting verður til þegar lestur er hluti af daglegu lífi barnsins. Umræðan hefur verið tekin, greiningin liggur fyrir og nú þarf að framkvæma. LESA er okkar framlag.


Við sem stöndum á bak við LESA erum lítið nýsköpunarfyrirtæki með stóra drauma og höfum að langmestu leyti fjármagnað verkefnið sjálf. Markmiðið er háleitt. Við ætlum að snúa við þeirri staðreynd að lestur er á niðurleið með því að gera skemmtilegasta lestrarleik í heimi.


Hugmyndin er einföld. Börn lesa meira þegar þau hafa áhuga á því sem þau eru að lesa og þegar lesturinn er skemmtilegur. LESA er lestrarleikur þar sem barnið fær nýja sögu á hverjum degi, safnar árangri og byggir upp lestrarvenju, dag fyrir dag. Sagan mætir barninu þar sem það er statt og vex með því. Þannig verður lestrarþjálfun að leik sem eflir lesskilning og orðaforða, og það sem skiptir mestu máli, lestraránægjan fylgir með.


Sögurnar okkar


Allar sögurnar í LESA eru skrifaðar frá grunni af okkar eigin ritstjórn. Við höfum líka sagt það áður og segjum það aftur. Höfundar eiga alltaf að fá greitt fyrir sína vinnu. Á þeirri sannfæringu byggjum við efnið okkar og munum halda því áfram.


Opnunarhátíðin


Dagskráin á opnunarhátíðinni endurspeglaði nákvæmlega það sem LESA snýst um. Hjörtur Hilmarsson hjá 14islands talaði um hönnuða lesgleði og hvernig góð hönnun kveikir löngun til að lesa. Guðbjörg Rut Þórisdóttir fjallaði um nýja kynslóð námsgagna og málþroska barna. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, minnti á að nýsköpun byrjar í kennslustofunni. Linda Heimisdóttir hjá Miðeind sýndi hvernig má nýta spunagreind til góðra verka. Vigdís Hafliðadóttir stýrði dagskránni og stofnandi LESA, Birgir Hrafn Birgisson, sagði söguna á bak við leikinn, frá hugmynd að leik.


Þakklæti er orðið sem nær best yfir daginn, sem okkur finnst satt að segja enn pínu óraunverulegur. Takk, öll sem komuð.


Hvað gerist næst?


Nú byrjar alvöru vinnan. LESA er komið í hendur barna og fjölskyldna og næstu mánuðir fara í að hlusta, læra og bæta. Við viljum vinna með foreldrum, kennurum og skólum sem vilja prófa LESA með sínum börnum, hvort sem það er heima í yndislestri, í lestrarkennslu eða í næsta lestrarátaki.


Vandinn er stór en hann er leysanlegur. Við leysum hann ekki ein og ætlum okkur ekki að gera það. En við erum byrjuð.


LESA er orðið aðgengilegt í Google Playstore. Við væntum þess að Apple opni leikinn fyrir iOS tæki á næstu dögum. Nánari upplýsingar má finna á lesa.app.


Birgir er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi LESA.

Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot

LESA kemur út haustið 2026

Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot
Screenshot

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn

Styrkt af

Tækniþróunarsjóði

©

2026

LESA. Allur réttur áskilinn