Tilkynningar
Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt

Birgir
Tilkynningar
Þegar margir höfundar fá sömu beiðni er eitthvað að hugmyndinni. LESA skrifar allt efni sitt sjálft og trúir því að hægt sé að byggja öflugt lestrarforrit án þess að ganga á rétt höfunda vegna þess að barn sem verður lesandi snemma þarf sögur sem það vill sjálft taka upp.

Þann 28. júlí, birti Vísir grein eftir Jakob Bjarnar um að rithöfundar hefðu fengið óvenjulegt tilboð frá aðilum sem eru að þróa gervigreindar forrit til stuðnings við lestrarkennslu. Hildur Knútsdóttir sagði frá því að hún hefði verið beðin um að láta texta sinn af hendi endurgjaldslaust á meðan verkefnið væri í þróun. Greitt yrði fyrir hann síðar, ef til vill, þegar varan væri tilbúin. Fleiri barnabókahöfundar hafa fengið sams konar beiðni. Viðbrögðin hafa verið hörð og það er auðskilið.
Frá því greinin birtist hafa nokkrir sent okkur í LESA línu og spurt hvort þetta séum við. Það er alls ekki rétt og mér finnst mikilvægt að taka af allan vafa.
Hver einasta saga er skrifuð frá grunni
Hjá LESA skrifum við allt okkar efni sjálf. Hver einasta saga er skrifuð frá grunni. Við notum ekki texta úr útgefnum bókum, hvorki með né án leyfis. Við erum með eigin ritstjórn sem hefur skrifað allar sögurnar í LESA. Nú eru þær orðnar 365 talsins, í þremur erfiðleikastigum.
Sögurnar okkar eru ætlaðar sem stuðningur við lestrarkennslu og teljast ekki vera bókmenntir í þeim skilningi. Þær eru byggðar á lestrarfræði hvað varðar innlögn á orðum og hljóðum sem kennd eru í lestri samkvæmt forskrift Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.
Sögurnar byggja á okkar eigin hugmyndum, okkar eigin persónum og þeim söguheimi sem við höfum þróað fyrir LESA. Sama gildir um myndirnar. Á bak við þetta liggur mikil vinna og við höfum frá upphafi lagt áherslu á að skapa allt efnið sjálf.
Við ætlum einvörðungu að þróa efni fyrir yngsta stig grunnskóla. Þar teljum við þörfina mesta og þar viljum við leggja okkar af mörkum.
Höfundar eiga að fá greitt
Þegar margir höfundar fá sömu beiðni er ekki lengur um að ræða eitt klaufalegt erindi. Þá er verið að leita kerfisbundið að efni annarra til að byggja vöru á. Það er ekki misskilningur á höfundarrétti. Ef viðskiptahugmynd gengur ekki upp nema með ókeypis aðgangi að höfundarréttarvörðu efni er eitthvað að hugmyndinni. Hildur orðaði þetta vel í viðtalinu og ég tek heilshugar undir það.
Þetta snýst í grunninn ekki um gervigreind heldur um virðingu fyrir höfundarétti. Höfundar vinna vinnuna sína eins og allir aðrir og eiga að fá greitt fyrir hana. Það á líka við þegar varan sem nýtir verkin þeirra er enn í þróun – raunar sérstaklega þá. Það er ekki eðlilegt að höfundar taki áhættuna á þróun verkefnis án endurgjalds.
Gervigreind mun án efa breyta miklu á næstu árum. Hún getur orðið öflugt verkfæri, einnig í lestrarkennslu. En hún breytir ekki þeirri einföldu staðreynd að einhver skapaði textann og á réttinn að honum.
Við hjá LESA trúum því að hægt sé að byggja öflugt lestrarforrit fyrir börn án þess að ganga á rétt höfunda. Markmið okkar er að vekja áhuga barna á lestri sem allra fyrst. Barn sem verður lesandi snemma les meira, nýtur bóka betur og verður líklegra til að kaupa bækur síðar á lífsleiðinni. Þó okkar bækur séu ekki bókmenntir þá eru þær okkar sköpun og við erum því í sama liði og rithöfundar.
Fyrsta útgáfa af LESA kemur út um miðjan ágúst.
Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi Lesa.
LESA kemur út haustið 2026
Fróðleikur, fréttir og tilkynningar
Fylgstu með vegferð Lesa frá upphafi og sjáðu okkur styðja við lestur og varðveislu íslenskrar tungu












